Sónar

Þetta verður bara stutt færsla fyrir þá sem að eru erlendis og ekki er hægt að ná í. Ég var að koma úr sónar sem að gekk svona glimmrandi vel. Allt var á sínum stað, leit vel út og barnið hreyfði sig endalaust. Ljósmóðirinn sagði örugglega 1000 sinnum “Ji, það er bara alltaf verið að hreyfa sig.” Duglegt barn þarna á ferð. Ég bauð pabba og mömmu að koma með og Sóley litla systir vildi endilega koma með svo að ég var með hjörð af fólki með mér.

Ég hafði verið með í maganum í tvo daga var svo spennt að fá að vita hvort kynið barnið væri, en þegar að uppi var staðið og ég var komin á bekkin og þessu kalda geli skellt yfir magan á mér, skipti það allt í einu engu máli. Það eins sem að skipti máli var að barnið mitt væri heilbrigt. Og þegar að ljósmóðirinn átti erfitt með að finna nýrun fékk ég fyrir hjartað þar sem að Hugi bróðir fæddist nýrnaveikur. En loksins róaðist krílið og leyfði henni að ná góðri mynd af pínulitlu nýrunum sínum. Þegar að allt var komið þá mundi ég eftir því að barnið er víst annað hvort hann eða hún. Pheobe eða Pheobo. Og þá sást þessi fíni spotti sem að segir okkur að þetta sé strákur.

Núna er ég farin að klára að pakka því að á að vera mætt upp á völl eftir 2 tíma.

Advertisement

~ by Þurý on July 1, 2008.

2 Responses to “Sónar”

  1. kannski er egoid ad drepa mig… en tegar tu segjir ‘fyrir ta sem eru erlendis’ brosi eg rosa storu brosi!!!! :D
    STRAKUR?? UUUU til hamingju astin min. ekki ad tad skipti mali, en aetla skoooooo ad kaupa fotboltaboli fra ollum heimshornum handa tessum ‘fraenda’ minum eins og eg geri handa oskari!!!! :D :D

    annarsssssss er tad bara ad fretta: ad matt sagdi mer ad hann vaeri ad koma 2 juli, og sendi mer flugnumer og felag. en neinei, eg for uta flugvoll i gaer, beid og beid, let kalla upp nafnid hans, reyndi ad hringja, hann fannst hvergi haha. eg var ad deyja ur ahyggjum, tvi tad var flug med tessu numeri fra rettum stad, hann bara fannst ekki. beid tangad til 6 i morgun i teirri von ad hann mundi lata sja sig uppa hoteli. en gerdi mer svo loks grein fyrir tvi, mer til mikillar gremju, ad hann hedi ekki getad verid komin svona fljott….. malid er ad tad er alltaf svona ‘plus 1 daimi isviga tegar tu bokar langflug… svo hann er liklega ad koma i KVOLD, hann bara fattadi ekki…. ohhhhhh…. en eg fer allavega aftur uta flugvoll :)

    hvernig gengur utanlandsferdin??? ohhhh vona ad se gaman hja ykkur!!! bid ad heylsa runari og littla fraenda.. eg aetla skooooo ad vera dekurfraenkan sem stelur honum alltaf og kaupir is og nammi og dekrar vid hann ;) SAKNA TIN ASTIN MIN!!!!! tu veist tu ert best, elska tig og hlakka til ad sja tig! laet vita hvernig gengur med matt! :) xxxxxxxxxxxxxxx

  2. blogga blogga blogga blogga…. x

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.