valda grænmetisætur meðgöngumóðu?

 Photobucket

Sápukúlur … 

Undanfarið hef ég mikið heyrt minnst á eitthvað sem að kallast ‘Pregnancy brain’ eða meðgöngumóða. Ekki veit ég hvort þetta er raunverulegt fyrirbæri eða hvort þetta séu aðeins sögusagnir. Meðgöngumóða er eitthvað sem að konur geta fundið fyrir á meðgöngu. Gróflega lýst þá er þetta tap á skammtímaminninu. Ég hef ekki fundið fyrir minnisleysi ennþá en ég hef fundið fyrir skertri rýmnisgreind. Ég geri mér semsagt ekki almennilega grein fyrir því hve stór bíllinn minn er, hvar glasið er á borðina svo eitthvað sé nefnt. Nei, ég hef ekki klesst bílinn minn. En mér tókst að hella heilum Swiss mocca yfir mig, töskuna mína og peysu á Oliver á miðvikudaginn var. Einnig var ég næstum því búin að keyra ofan í holuna á Smurstöðinni þegar að ég fór að láta smyrja bílinn. 

Jafnvægisskynið er líka eitthvað orðið slappt þar sem að ég þarf yfirleitt nú til dags að halda mér í eitthvað þegar að ég stend. Og ég tala nú ekki um bragðskynið en ég held að ég gangi með grænmetisætu. Kjöt get ég varla komið ofan í mig því mér verður svo óglatt af því. Salt og krydd er bannað líka sem að er erfitt þar sem að ég salta og krydda matinn minn óhófelga mikið. Og kál, grænmeti og ávextir er orðið eitthvað sem að ég fæ ekki nóg af. Kínakál, ferskjur, lambahagasalat og gúrka. Nammi. 

Ég hef nú ekki fundið mikið fyrir miklum skapbreytingum nema það að ég er kátari ef að eitthvað er. Ég átti samt erfitt með mig um daginn þegar að mér fannst alveg agarlegt hvað kúlan mín er lítil, og að ég skyldi ekki vera farin að finna hreyfingar. Eftir knús frá Rúnari mundi ég eftir því að ég bað til æðri máttarvalda um að kúlan mín og barnið yrðu lítið og að hreyfingar ættu að fara að koma bráðlega. Og það leið ekki langt þangað til að þær fundust því sama kvöldið þegar að ég lagðist upp í rúm byrjaði litla grænmetisætan að sparka. Og hefur verið dugleg við það siðan. Er ein skrítnasta tilfining sem að ég hef fundið. 

Á morgun er vika í sónar og England. Ég get ekki beðið. Einnig á morgun fæ ég að sjá hana Ingibjörgu mína sem að var að koma heim frá Slóveníu. 

Hér er smá mynd í lokin sem að var tekin á laugardeginum þegar að ég og Rúnar kíktum í smá labb niður í miðbæ Hafnarfjarðar og keyptum okkur pylsur. 

 Photobucket

Nammi nammi pylsa

Advertisement

~ by Þurý on June 23, 2008.

2 Responses to “valda grænmetisætur meðgöngumóðu?”

  1. hae saeta!! haha… leidinlegt med kryddid, eg veit hvernig tu ert med aromat og tess hattar. ekki hafa of miklar ahyggjur af fymnisgreindinni, eg hef nu gert ymislegt verra en ad hella yfir mig swiss mokka… og ekki er eg olett *bank bank* ;) hvernig var pulsan ta…??? gaman ad krilid se farid ad sparka, hlakka svoooooooo til ad finna, get ekki bedid!! eg var ad enda vid ad boka flug fra kuala lumpur til bangkok (odyrara en ruta/lest), 6 dagar i Matthew Townsend!!!!!! hmmm tetta er spes!! aetla ad fara skoda muslemsk musteri nuna, hef aldrei verid i muslimalandi adur tannig er spes…. turfti samt ad hylja mig vel… (til ad vera hleypt inn) sem er PAIN i tessum hita…. fynn til med kvennfolkinu her! sakna tin astin in! hafdu tad gott!! xxxxx

  2. Bara láta vita af innliti. Gaman að heyra þessar in-depth lýsingar á óléttu :þ

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.