Endurskoðun framhaldsskóla

Geimveran � mallanum

Ég mæli með því frá og með þessum degi að í framhaldsskóla eigi að vera kennt hvernig gera eigi skattskýrslu og hvað verkalýðsfélög eru og til hvers, við borgum hluta launa okkar til þeirra. Ég er búin að brenna mig illilega á að hafa ekki þessa þekkingu. Ég er bara svo heppin að hafa tengdamömmu sem að passar upp á rétt sinn og annara. Rugl. Ég ætla að gerast endurskoðandi.

Að fá vinnu gengur ekki neitt. Ég er búin að sækja um allstaðar sem að mér dettur í hug nánast. Í frítíma mínum er ég farin að leysa sudoku af miklu kappi og ferð okkar hjúanna til Engilsaxlands er plönuð fram í fingurgóma í 5 lita kerfi. Að vera svona athafnalaus er ekki fyrir mig.

Einnig hafði ég þá ánægju að ná mér í kýli á rófubeinið. Já þú last rétt. Rófubeinið. Svo að ég var 3 daga í röð upp á heilsugæslu, með rassin út í loftið, að láta stinga og kreysta safan úr. Í dag er ég orðin góð, en á tímabili gat ég ekki setið á afturendanum vegna sársauka. Alls staðar er verið að segja já þú ert ólétt, en gaman. Njóttu þess. Og líka í “fríi”. En yndislegt. Getur bara notið þess smá að vera til. Ég hef aldrei litið á ógleði, svefnleysi, dofa, kýli, læknisheimsóknir og að eiga engan pening, sem frí. Og ég mun aldrei líta á það sem frí.

16vi og 3da

*myndin hér að ofan er fyrir þá sem að eru erlendis og sjá ekki “stóru” bumbuna mína.

og.. hvaða dagur er á sunnudaginn.. humm??

Advertisement

~ by Þurý on June 6, 2008.

2 Responses to “Endurskoðun framhaldsskóla”

  1. haha nei astin min, eg held ad athafnaleysi se alls ekki fyrir tig. eda mig. o nei. ‘fri’ haha. o nei. vid skiljum hvor adra. vona ad tad fari ekki med tig. en tu hlytur ad vera ordin meistari i soduko ;) takk fyrir ad setja mynd (reikna med ad se fyrir mig… :) …)… svo saet bumba!!!!! :)
    eg er enn i bangkok ad drepa a mer lifrina. vorum bunar ad akveda ad taka tvi rolega i gaer, var literally a leidinni uppi rum ad drekka vatn um 3 leytid i gaer tegar eg rekst a enskan vin minn sem eg djammadi med i saigon og for med honum, drukkum fotur (ja fotur) af vodka framm a kvold… var samt ekkert spes kvold tvi vid lentum i maaaassaaa rifrildi og eg var oskrandi a hann uta midju dansgolfi… og for heim og gret… haha, ja mikid rett. helvitis faviti hreinlega, en e-d hefur nu afengid spilad inni tetta. haha. annars hef eg tad gott, forum hedan a morgun. og styttist i Matt!!! :)

    uss uss uss…. hvada kyli er tetta :S gott ad tad se farid. eg sakna tin svo mikid astin min get ekki bedid eftir ad knusa tig!!!!! xxxxxxxxxxxxxxxx

    …eg kann EKKI ad gera skattskyrslu.

  2. Hey, til hamingju með tilvonandi erfingjann ;)
    Takk fyrir innlitið á mína síðu, kíktu sem oftast á hreyfingarleysi bloggsíðuminnar þar sem þú hefur ekkert að gera. Gangi þér vel í atvinnuleytinni.

    Og btw. ég er mjög svo sammála að framhaldsskólar ættu frekar að kenna skattaskýrslugerð og reglur verkalýðsfélaga s.s. hver eru mín réttindi o.þ.h. frekar heldur en ýmsar stærðfræðiformúlur sem maður notar varla á prófinu.
    ég er samt með hugmynd að góðri samsæriskenningu: Þeir vilja ekki að við kunnum þessa hluti þvi þá þyrftu þeir að borga miklu meira ef við vissum af öllum þeim réttindum sem við erum að missa af :þ

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.