Stæði fyrir vanfærar konur
Ég fór í Ikea um daginn til að kaupa gestarúm. Það er alveg ótrúlegt hvað það er alltaf mikið af fólki í Ikea þrátt fyrir allt sem að er að gerast í fjármálaheiminum. En þar sem að ég hringsólaði í leit að stæði sá ég bunka af stæðum fyrir fatlaða. Gott að blessað að hafa stæði fyrir fatlaða en þetta er eini staðurinn þar sem að ég hef aldrei séð bíl á, sama hve mikið er að gera. Hinu megin við fötluðu stæðin, er böns af stæðum fyrir fólk með barnavagna og börn. Sniðugt líka. En hvers vegna í ósköpunum er ekki stæði fyrir óléttar konur. Væri mjög praktískt að hafa nokkur þannig nálægt dyrunum. Eða segi ég þetta kannski bara af því að ég er ólétt?? Ég sé allavega merkið fyrir mér. Óléttur óliprik.
1. júlí verður mikill og skemmtilegur dagur í mínu lífi og Rúnars. Því þann dag fáum við að vita kyn barnsins okkar, og seinnipart dags munum við fljúgu til Engilsaxalands. Spennan er í hámarki, enda langt síðan að frökenin hefur stigið upp í flugvél. Ég er annars að verða félagslega þroskaheft, svo að ég auglýsi eftir félagskap. Megið senda auglýsingar hingað inn í commentakerfi wördpress pakkans.
15 vikur….



bara að testa hvort að þetta virki
þið meigið hinsvegar alveg commenta
Heheh en eru til stæði fyrir konur sem hætta ekki á túr???????? FUKKER
Til hamingju með nýju síðuna!!
Pant vera með í sms-hringnum sem fær skilaboð um hvaða kyn litli hellisbúinn er… ji ég er svo spennt! og þið að fara til Englands – frábært að þið skilduð drífa ykkur! Hvað verðiði lengi?
Við verðum 2 vikur úti. Get ekki beðið
hvad er tetta, eg er viss um ad eg hafi kommentad her um daginn hefur ekki farid i gegn. andskotanns tridja heims nettengingar…!! haha. ohhh eg er svo spennt ad fa ad vita
eg er bara vera lot i bangkok, vinkonurnar koma i kvold, ta hefst gedveikin
saaaaaaakna tin elsku elsku thury!!! xx