Höfundur heitir Þurý. Hún er trúlofuð Rúnar Matthíassyni og eiga þau von á erfingja um miðjan nóvember. Hún er forfallin Harry Potter aðdáandi og má þess til gamans geta að í júlí 2007 þegar að síðasta bókin kom út um galdrastrákinn þá vann hún 3 sæti í búningakeppni en hún var klædd í Hogwarts skólabúning. Hún er skáld og hönnuður, finnur hugmyndir alls staðar. Hún elskar að skapa nýjan stíl fyrir sjálfa sig, hún elskar að vera hún sjálf. Hún elskar lífið. Hún elskar fólk sem að er hreinskilið og gott. Hún er mikið fyrir tónlist og sérstaklega nýja tónlist sem að fólk í kringum hana er ekki að hlusta á. Þurý er alltaf að reyna að beturbæta sjálfa sig í að verða betri manneskja og tekur vel á móti öllu sem að hjálpar henni í því markmiði.